Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 42/2022 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 42/2022

Fimmtudaginn 17. mars 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 19. janúar 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar um að greiða henni ekki atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 19. janúar 2022 vegna ákvörðunar Vinnumálastofnunar um að greiða henni ekki atvinnuleysisbætur. Með erindi, dags. 20. janúar 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir upplýsingum frá kæranda um hvort kæran lyti að sama ágreiningsefni og í máli hennar nr. 640/2021. Svar barst ekki. Þann 26. janúar 2022 sendi kærandi úrskurðarnefndinni afriti af bréfi Vinnumálastofnunar frá 18. janúar 2022 þar sem ákvörðun stofnunarinnar, dags. 26. nóvember 2021, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði var rökstudd. Þann 3. mars 2022 var úrskurðað í máli kæranda nr. 640/2021 þar sem ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði var staðfest.

II.  Niðurstaða

Samkvæmt 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal nefndin úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar. Í 11. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar kemur fram að úrskurðarnefndin kveði upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna. Af gögnum málsins má ráða að kæran varði ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði. Þar sem úrskurðarnefnd velferðarmála hefur þegar úrskurðað um það ágreiningsefni er kæran ekki tæk til efnismeðferðar. Að því virtu og með vísan til framangreinds er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum